Wednesday, May 23, 2012

Afmæliseuro

Bæði Hemmi og tengdapabbi eiga afmæli í lok maí og héldum við smá eurovision partý í tilefni þess.
Ég er svona léttur eurovision nörd í mér og finnst þetta voða gaman.
Svekktust að sjá ekki Sviss áfram þó maður skildi nú ekki helminginn af þessari ensku sem þeir voru að reyna að syngja. En sjaldan snýst þetta nú um góðan söng og lag eins og við öll vitum. Við værum að sjálfsögðu búin að vinna þetta 10 sinnum ef svo væri ;)

Þar sem við litla fjölskyldan ætlum að skella okkur til Svíþjóðar á föstudaginn og vera yfir afmælið hans Hemma  var ákveðið að gefa honum þrítugsgjöfina í gær og ég hef bara ekki séð hann síðan. Ef þið spottið einn dökkhærðan þeystast um eins og brjálæðingur endilega látið mig vita.







2 comments:

  1. geðveikt flottur!! ég sá einhverja svarta eldingu þeysast hérna niður miklubrautina áðan, hélt reyndar að þetta væri enn eitt mótorhjólið - en sé núna að þetta var bara HEMMI!

    ReplyDelete
  2. Hahaha... Nenniru að grípa hann fyrir mig

    ReplyDelete