Eydís Eva varð veik í fyrsta skiptið í gær, fékk mikinn hita og ældi vegna þessa. Við mæðgur hreyfðum okkur því ekki úr sófanum allan daginn, þar sem litla prinsessan tók það ekki mál að vera neinstaðar annars staðar en í fangi móður sinnar.
Það er erfitt að sjá barnið sitt svona lasið en samt einhvern veginn gefandi ef maður getur sagt það svoleiðis að vera svona nauðsynleg og geta sinnt þörfum hennar.
Þrátt fyrir háan hita var hún alveg eins og engill.
Í dag er hún alveg hitalaus en við tökum ekki sénsinn og höfum það bara kósý hérna heima í dag.
Vonandi er henni alveg batnað :) Knús á ykkur
ReplyDeletekv.Þóra
Elsku gullið !
ReplyDeleteBatakveðjur frá okkur hér og Lilju sem er reyndar líka lasarus **
..Og til hamingju með bloggið - ég hlakka til að fylgjast með :)
Knús
Ingibjörg
Gaman að geta fylgst með ykkur hér :) Batakveðjur til prinsessunnar.
ReplyDeleteKnús og kossar frá Dubai
Valgerður