Tuesday, April 24, 2012

Bumbu-gló

Ég og Eydís Eva skelltum okkur út í góða veðrið í dag. Byrjuðum á yndislegum hádegisverði á Gló með henni Sóley sem er komin 39+ vikur og lítur svaka vel út. Þetta er alveg klárlega fallegasti fylgihluturinn, þ.e. óléttubumba en við getum ekki beðið eftir að fá vinkonu okkar í heiminn.
Ég hafði aldrei farið á Gló áður og var ekki svikinn, svaka góður matur. Við skelltum okkur svo í kaffi og konfekt í Mosfellsbakarí, (svo fínar á því) það er nefnilega hægt að fá að smakka konfektið þarna.
Kíktum á mömmu og fengum DÓT



Enduðum síðan daginn að kíkja til hennar Elínar og panta fína naglalakkið og varalitinn úr auglýsingunni hér að neðan og nýja L´Oreal primerinn vúhú... læt ykkur vita hvernig hann virkar þegar ég fæ hann.
Já Sandra, ég keypti einn fyrir þig líka.

3 comments:

  1. Rosalega hlakka ég til að fara í fæðingarorlof :)

    ReplyDelete
  2. takk fyrir að hugsa svona vel um mig ástin*
    stalst til að kaupa hann úti og get staðfest það að þessi primer er sjúkur!! verður ekkert smá flottur í sumar líka! :)
    knús

    ReplyDelete
  3. Takk fyrir síðast sæta, rosa gaman að hitta ykkur mæðgur*

    ReplyDelete