Friday, April 20, 2012

American Idol og afmæli


Ég horfði á fyrsta skiptið á American Idol síðasta föstudag, eða fyrsta þáttinn í þessari seríu og ég kolféll fyrir hárgreiðslunni sem Jennifer Lopes var með... 


Ég hélt einhvern veginn að það væri ekki hægt að vera með svona greiðslu nema vera 12 ára en ákvað síðan að prufa og fór í  þrítugsafmæli með greiðsluna á miðvikudaginn

og fannst bara vel til takast, næst (þ.e. ef ég verð ekki á milljón að gera mig ready) þá ætla ég að slétta hárið líka à la J. Lo style.

Hemmi er núna í öðru þrítugsafmæli og ég heima í rólegheitum með stelpuna. Þetta verður mikið afmælisár þar sem kallinn er að komast á fertugsaldurinn á árinu og margir vinir okkar á sama aldursári og hann halda uppá þessi tímamót. Það verður eiginlega að halda extra vel uppá þegar maður dettur inn í annan tug.
Annars er ég svo mikið afmælisbarn að ég reyni að halda upp á það á hverju ári.
Læt fylgja mynd af afmæliskökunni sem var bökuð í mars.



2 comments:

  1. Ja segi thad med ther mjog flott hargreidsla hja J- Lo. Vid erum i saman 30 afmælis pakkanum thetta arid. Hvernig ætlar Hemmi ad halda upp a sinn dag?

    ReplyDelete
  2. Það er ekki alveg komið á hreint, líklegast eftir Svíþjóð ferðina, í byrjun júní

    ReplyDelete