Monday, October 22, 2012

Helgin


 Hún einkenndist af sport viðburðum, sem er mjög óvanalegt á mínu heimili. Ég á ekki mann sem er að missa sig yfir enska boltanum og ég er miklu meira fyrir að horfa á eitthvað allt annað.
Eftir frábært matarboð með góðu fólki á föstudeginum, var vaknað snemma og byrjað að horfa á fimleika. Þetta er það skemmtilegasta sem hægt er að horfa á, ég tala nú ekki um þegar spennan er svona mikil og stelpurnar enduðu á að rústa mótinu í báðum sínum flokkum.
Ég fór btw. að háskæla eftir flottustu umferð á trampólíni sem ég hef séð.

Síðan skelltum við okkur til Keflavíkur að sjá Söndru keppa í þrekmótaröðinni sem var líka mjög skemmtilegt, því eins og hjá fimleikastelpunum var hún í langbesta liðinu. Lentu bara í smá veseni í lokin og urðu í 3 sæti en þetta var alveg frábært að horfa á. Þær enduðu því sem þriðja hraustasta liðið á Íslandi 2012

Stuðningsaðili nr. 1

Sunnudagurinn fór svo í vinnuferð upp í fríhöfn að kynna sokkabuxur. Það er eitthvað svo sjarmerandi við að vera í fríhöfninni, þetta er alltaf byrjunin á góðum ferðalögum og tengir staðinn við góðar minningar.
Ég verð að kynna sokkabuxur þar alla fimmtudaga í nóvember, þannnig ef svo vildi vera að þið séuð á leið út, þá endilega komið við og gefið mér knús ;)... og kaupið sokkabuxur, að sjálfsögðu.

Ilarie í bordeaux og fínu fínu H&M skórnir mínir



Sunnudagskvöldið endaði á baðþrifum...



3 comments:

  1. Úllala! Ég verð í fríhöfninni 22. nóv sem er fimmtudagur. Sé þig þar og kaupi örugglega eitt stykki sokkabuxur ;)

    ReplyDelete
  2. Neihei, frábært, já sjáumst þar og kannski fyrir það? Lunch í vikunni eða næstu?

    ReplyDelete
  3. Já til í það! Ég heyri í stelpunum á morgun. Finnum hentugan tíma ;)

    ReplyDelete